Enski boltinn

Pulis tókst loks að landa Rodriguez

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rodriguez hefur ekki náð fyrri styrk eftir erfið meiðsli.
Rodriguez hefur ekki náð fyrri styrk eftir erfið meiðsli. vísir/getty
West Brom hefur fest kaup á framherjanum Jay Rodriguez frá Southampton. Kaupverðið er 12 milljónir punda.

Tony Pulis, knattspyrnustjóri West Brom, hefur lengi haft augastað á Rodriguez og hefur nú loksins landað honum.

Rodriguez sló gegn tímabilið 2014-15 þegar hann skoraði 15 mörk í ensku úrvalsdeildinni.

Undir lok þess sleit hann krossband í hné og missti þ.a.l. af öllu næsta tímabili. Meiðslin gerðu einnig út um vonir Rodriguez að fara með enska landsliðinu á HM í Brasilíu 2014.

Rodriguez hefur ekki náð fyrri styrk eftir meiðslin og átti ekki fast sæti í byrjunarliði Southampton á síðasta tímabili.

Hinn 27 ára gamli Rodriguez er uppalinn hjá Burnley og lék með liðinu þangað til hann fór til Southampton árið 2012. Hann lék alls 126 leiki og skoraði 35 mörk fyrir Dýrlingana.

West Brom endaði í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×