Íslenski boltinn

Þróttarar upp að hlið Fylkis á toppnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, gæti verið á leið upp í Pepsi-deildina á nýjan leik með sína menn.
Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, gæti verið á leið upp í Pepsi-deildina á nýjan leik með sína menn. Vísir/Eyþór
Aðeins eitt stig skilur að efstu þrjú lið Inkasso-deildarinnar eftir 1-0 sigur Þróttar á Fylki í lokaleik níundu umferðar í kvöld.

Viktor Jónsson skoraði eina mark leiksins strax á 1. mínútu en þrátt fyrir að hafa sótt talsvert í leiknum náðu Árbæingar ekki að jafna metin.

Þetta var annað tap Fylkis í sumar en með sigrinum náðu Þróttarar að jafna við Árbæinga á toppi deildarinnar. Bæði lið eru með nítján stig en Keflavík er stigi á eftir í þriðja sætinu.

Næsta umferð hefst á fimmtudagskvöld en þá fara Keflvíkingar í heimsókn til Framara í Laugardalnum.

Þróttur mætir Selfossi á útivelli á föstudag og Fylkismenn taka á móti Haukuum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×