Tónlist

Rafræn tónlistarveisla ræst í dag

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Á Extreme Chill verður boðið upp á leyndardómsfullt ferðalag.
Á Extreme Chill verður boðið upp á leyndardómsfullt ferðalag.
Raftónlistarveislan Extreme Chill Festival hefst í dag með pomp og prakt. Í ár verður hátíðin haldin í Reykjavík en áður fór hún fram annars staðar – til að mynda í Vík í Mýrdal, Berlín og á Hellissandi.

Viðburðir Extreme Chill verða á sex mismunandi stöðum í miðborginni – skemmtistaðnum Húrra, Fríkirkjunni, Bíó Paradís, Mengi, Lucky Records og Miðgarði – Center Hotels.

Þetta ku vera stærsta hátíðin til þessa, en þetta er áttunda árið sem hún fer fram. Mikið af stórum nöfnum úr rafsenunni ætlar sér að dáleiða gesti með dularfullum og rafskotnum tónum sínum – en þar má nefna úr hópi erlendra listamanna The Orb, Mixmaster Morris, Courtesy, Christopher Chaplin og Studnitzky. Íslenski hópurinn er engu síðri en þar eru til að mynda Jónas Sen, Stereo Hypnosis, Reptilicus og Poco Apollo og margir fleiri.

Í Bíó Paradís verður svo í tengslum við hátíðina frumsýnd heimildarmyndin Lunar Orbit sem fjallar um hljómsveitina The Orb, en tónleikar sveitarinnar eru einn hápunktur hátíðarinnar þetta árið. Um er að ræða goðsagnir í rafbransanum.

Fyrstu tónleikar hátíðarinnar eru á dagskrá í Lucky Records á Rauðar­árstíg klukkan þrjú í dag og gleðin heldur svo áfram fram eftir í Mengi á Óðinsgötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×