Lífið

Löggan og slökkviliðið sameinuðu krafta sína í krefjandi verkefni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Starfsmenn lögreglu og slökkviliðs velta fyrir sér næstu skrefum. Djæf? Toppur? Hlunkur?
Starfsmenn lögreglu og slökkviliðs velta fyrir sér næstu skrefum. Djæf? Toppur? Hlunkur? Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Á dögunum kom upp krefjandi verkefni á Suðurnesjum þegar Ísbíllinn kom akandi að slökkvistöðinni í Reykjanesbæ. Voru góð ráð dýr en Lögreglan á Suðurnesjum slær á létta strengi á Fésbókarsíðu sinni.

Eins og allir vita er samstarf lögreglu og slökkviliðs oft mjög náið og unnið mikið saman við að leysa alls kyns verkefni. 

„Nú varð að bregðast skjótt við og leysa þetta verkefni. Ekki var að spyrja að okkar fólki sem leysti þetta verkefni á mettíma,“ segir í færslunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×