Lífið

Ein breyting á mataræðinu breytti öllu

Rebecca Lee dreymdi um að eignast fjölskyldu
Rebecca Lee dreymdi um að eignast fjölskyldu instagram
Þegar læknar tjáðu Rebeccu Lee að hún myndi líklega aldrei geta eignast börn vegna þyngdar sinnar ákvað hún að gera eitthvað í málunum.

Hún taldi rétt að reyna að grennast svo að draumur hennar um að eignast fjölskyldu gæti orðið að veruleika.

Því ákváð hún að taka til í mataræðinu og það fyrsta sem fékk að fjúka voru pizzur. Þyngdartapið lét ekki á sér standa. Kílóin hrundu af henni. 

Hún segir að þyngdartapið hafi veitti henni sjálfstraustið til byrja að stunda líkamsrækt og áður en hún vissi af var hún hætt að neyta annarrar óhollustu.

Hún fór frá því að vera rúmlega 116 kíló niður í 76 á einu ári.

Lee segist vera hamingjusamari í dag en nokkru sinni fyrr. „Þegar fólk sér fyrir-myndirnar af mér gerir það sér ekki grein fyrir því hvað ég grét oft,“ segir hún í samtali við fjölmiðla ytra. Hún hafi lítið viljað fara út á meðal fólks en segist í dag sjaldan hafa verið sjálfsöruggari.

„Ég er stolt af mér og vegferð minni. Ég er ný manneskja og get ekki beðið eftir því að finna ástina.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×