Sport

Sjáðu Conor og Mayweather taka á því í æfingasalnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bardaginn fer fram 26. ágúst.
Bardaginn fer fram 26. ágúst.
Undirbúningur er nú í fullum gangi hjá bæði Floyd Mayewather og Conor McGregor fyrir bardaga þeirra í hnefaleikahringnum þann 26. ágúst.

Þetta verður fyrsti alvöru hnefaleikabardagi McGregor sem er stærsta UFC-stjarna heims. Hann fær alvöru prófraun, gegn einum besta hnefaleikmanni sögunnar en Mayweather er ósigraður í 49 bardögum.

Mayweather er talinn sigurstranglegri en hann er orðinn fertugur og var búinn að leggja hanskana á hilluna. McGregor er á hátindi ferilsins, 28 ára gamall.

Báðir eru byrjaðir að taka á því í æfingasalnum og birtu myndböndin hér fyrir neðan á samfélagsmiðlum.






Tengdar fréttir

Pacquiao: Conor á enga möguleika

Manny Pacquiao hefur engan áhuga á bardaga Conors McGregor og Floyds Mayweather og varar fólk við því að hann gæti orðið mjög leiðinlegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×