Lífið

Níu ára undrabarn: Heitir Celine, elskar Celine og syngur Celine

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlegur flutningur.
Ótrúlegur flutningur.
Hin níu ára Celine mætti í áheyrnarprufu í America's Got Talent á dögunum og gjörsamlega heillaði alla í salnum upp úr skónum.

Hún gerði sér lítið fyrir og tók lagið My Heart Will Go On sem nafna hennar gerði ódauðlegt árið 1997 þegar kvikmyndin Titanic kom út.

Celine á litla systur sem heitir Dion og því heita systurnar Celine og Dion sem verður að teljast nokkuð athyglisvert.

Celine flutti lagið einstaklega vel og trylltist hreinlega salurinn þegar þessi níu ára stelpa þandi raddböndin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×