Lífið

Gullhnappur Tyra Banks kom fram í Britain´s Got Talent fyrir þremur árum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Banks gjörsamlega trylltist úr gleði með atriðið.
Banks gjörsamlega trylltist úr gleði með atriðið.
Danssveitin Light Balance sló heldur betur í gegn í America´s Got Talent í Bandaríkjunum um helgina en hópurinn mætti í áheyrnarprufu með mjög svo frumlegt dansatriði.

Atriðið heppnaðist það vel að Tyra Banks, kynnir þáttanna, gjörsamlega missti það og rauk beint í gullhnappinn.

Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem Light Balance kemur opinberlega fram en hópurinn mætti í áheyrnarprufu í Britain´s Got Talent árið 2014 og í bæði skiptin var Simon Cowell í dómarahópnum. Hann virtist reyndar ekki muna eftir hópnum um helgina.

Hér að neðan má sjá prufurnar báðar, með þriggja ára millibili.

Hér að neðan má sjá drengina í BGT árið 2014





Fleiri fréttir

Sjá meira


×