Innlent

Stormviðvörun og svalt: „Ekki kræsilegt veður“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er ekkert sérstaklega sumarlegt á landinu þessa dagana en Veðurstofan varar við stormi suðaustanlands þar sem jafnframt má búast við mikilli úrkomu.
Það er ekkert sérstaklega sumarlegt á landinu þessa dagana en Veðurstofan varar við stormi suðaustanlands þar sem jafnframt má búast við mikilli úrkomu. vísir/vilhelm
Veðurstofa Íslands varar við stormi í dag, meira en 20 metrum á sekúndu, austan Öræfa og sunnan til á Austfjörðum. Vindhviður geta náð allt að 35 metrum á sekúndu og þá verður mikil úrkoma austan til á landinu og síðan einnig á Ströndum í kvöld. Ekkert ferðaveður verður á þeim slóðum þar sem spáð er stormi fyrir þá sem eru á farartækjum sem taka á sig vind.

„Norðaustan hvassviðri eða stormur austan Öræfa og á sunnanverðum Austfjörðum í dag en norðanstæðari í kvöld og ekki ferðaveður fyrir farartæki sem taka á sig vind. Lægir smám saman á morgun.

Í öðrum landshlutum má búast við norðaustan 8-15 m/s. Ausandi hellirigning verður á austanverðu landinu, þó einna mest á norðanverðum Austfjörðum. Einnig bleytir vel í á Ströndum. Rigning með köflum suðvestanlands fram eftir degi. Áfram vætusamt á norðanverðu landinu á morgun en skýjað með köflum sunnantil. Heldur svalt í veðri, 7 til 14 stig, hlýjast suðvestanlands.

Síðan er nú útlit fyrir öllu rólegra veður fram á fimmtudag, breytilega átt, 3-8 m/s, skýjað með köflum en víða síðdegisskúrir. Hiti 8 til 16 stig að deginum.

Sannarlega ekki kræsilegt veður nú í vorvertíðarlok og ekki gott að stripplast á Jónsmessunótt. En kaldara hefur verið að velta sér í snjónum 1992 en þá gerði hret með snjókomu um allt norðanvert landið og jafnvel í uppsveitum suðvestanlands. Mest mældist snjódýptin 7 cm í Dalsmynni í Hjaltadal og 4 cm á Nautabúi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur næstu daga:

Á laugardag:

Norðaustan 8-15 m/s, hvassast austast. Rigning og svalt í veðri norðan- og austanlands, en léttir til sunnan- og vestanlands. Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.

Á sunnudag:

Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir sunnan- og vestanlands og hiti 8 til 12 stig. Skýjað og þurrt að mestu um landið norðaustanvert og hiti 4 til 8 stig.

Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:

Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og víða síðdegisskúrir, einkum inn til landsins. Hiti 8 til 16 stig að deginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×