Innlent

Breyttu áætlunum sínum án þess að láta vita

Samúel Karl Ólason skrifar
Um sextíu björgunarmenn tóku þátt í leitinni.
Um sextíu björgunarmenn tóku þátt í leitinni. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir Landsbjargar á norðanverðum Vestfjörðum fundu í nótt par sem leitað var að. Þau fundust heil á húfi í Norðdal rétt við Galtarvita, einungis nokkrum klukkustundum eftir að leitin hófst. Um sextíu björgunarmenn tóku þátt í leitinni.

Leitin hófst eftir að parið, sem ætlaði að ganga frá Bolungarvík að Galtarvita og þaðan í Selárdal, skilaði sér ekki á réttum tíma.

Í ljós kom að fólkið hafði breytt ferðaáætlun sinni án þess að láta aðstandendur í byggð vita. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×