Íslenski boltinn

Heiðar Geir tryggði toppliðinu stig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leiknismenn fóru illa að ráði sínu í kvöld.
Leiknismenn fóru illa að ráði sínu í kvöld. vísir/eyþór
Þróttur og Leiknir R. gerðu 3-3 jafntefli í fyrsta leik 7. umferðar Inkasso-deildarinnar í kvöld.

Þróttarar eru með þriggja stiga forskot á toppnum á meðan Leiknismenn eru í 6. sætinu.

Ólafur Hrannar Kristjánsson kom Þrótti yfir strax á 4. mínútu þegar hann skoraði gegn sínum gömlu félögum.

Aron Fuego Daníelsson jafnaði metin á 13. mínútu en á 32. mínútu setti Hreinn Ingi Örnólfsson boltinn í eigið mark og kom Leikni yfir.

Elvar Páll Sigurðsson virtist svo vera búinn að tryggja Leikni sigurinn þegar hann kom Breiðhyltingum í 1-3 á 82. mínútu.

Rafn Andri Haraldsson minnkaði muninn fjórum mínútum síðar og þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Heiðar Geir Júlíusson metin. Lokatölur 3-3.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×