Múrsteinar í sýndarveruleika Sigurður Ragnarsson skrifar 15. júní 2017 09:15 We don’t need no education fluttu Pink Floyd hér um árið í sínu frábæra lagi Another brick in the wall. Það er ekki tilefni orða minna að rýna sérstaklega í textann að öðru leyti en því að nám hefur þróast mikið síðan lagið kom út fyrir nálægt 40 árum og kannski hafa höfundar skipt um skoðun? Mennt er máttugt afl sem skiptir samfélög gríðarlegu máli en það sem gleymist oft er að nám er í stöðugri þróun. Ég er t.d. sannfærður um að nám eigi eftir að verða með allt öðrum hætti eftir 40 ár. Það er tilhneiging að halda að framfarir stöðvist á ákveðnum tímapunkti vegna þess að við dettum niður á einhverja fullkomna formúlu en svo er ekki, og sagan sýnir okkur auðvitað annað. En hvernig tekst til með þróunina er háð ýmsum þáttum, m.a. fjármagni, en þó ekki síst þeim mannauði sem greinin státar af. Í þessu samhengi er auðvitað jákvæðast fyrir þróunina ef menntamál búa við nauðsynlegan fjárhagslegan stuðning. Þannig aukast líkurnar á að greinin laði til sín meira af hæfileikaríku fólki og að framþróunin verði farsælli. Að þjóna samfélaginu með námi snýst meðal annars um að hafa skýran tilgang, sérstöðu og þjóna raunverulegum þörfum fólks, fyrirtækja og stofnana samfélagsins. Það sem gleymist hins vegar oft er að það er ekki bara tæknin sem knýr áfram breytingar í námi. Við stöndum stöðugt frammi fyrir nýjum viðfangsefnum í tilverunni sem þarf að leysa og nám þarf að taka mið af því. Störf hverfa en önnur koma í staðinn, lífsstíll fólks breytist, og samkeppnisumhverfið er kvikt og kallar stöðugt á nýja þekkingu og færni. Ef ég skoða í kristalskúluna mína sem ég keypti í Kolaportinu fyrir þúsund kall sýnist mér ég sjá að eftirfarandi geti verið staðan eftir 40 ár: Nágranni minn er í vinnunni og hann getur hvenær sem er stigið inn í sýndarveruleika með teymi sínu þar sem hann mátar viðfangsefnin við námið sitt. Hann getur kallað fram alls konar aðstæður í þessum heimi, meðal annars átt samskipti við og kannað viðbrögð samstarfsfólks, viðskiptavina og annarra við ýmsum hugmyndum og mögulegum aðgerðum. Á sama tíma fylgja teyminu eftir sérstakir þjálfarar og leiðbeinendur sem hægt er að kalla til hvenær sem er inn í sýndarheiminn til að hlusta, greina og vinna með teyminu. Gerist þetta eftir 40 ár – eða kannski fjögur ár? Við höfum heilmikið um það að segja. Höfundur er forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Afhverju viltu fá trúð á Bessastaði? Diljá Ámundadóttir Zoega Skoðun Það þarf þyrlupall við þjóðarsjúkrahúsið Hópur lækna á þyrlum Landhelgisgæslunnar Skoðun Halla Hrund - Þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig? Tómas Ellert Tómasson Skoðun Halla Hrund, Halla Tómasdóttir eða Katrín Jakobsdóttir? Reynir Böðvarsson Skoðun Vegna hvers kýs ég Katrínu Jón Kristjánsson Skoðun Heldur þann besta en þann næstbesta! Vilhjálmur B. Bragason Skoðun Halla Hrund; vörður auðlinda og nýsköpunar Valdimar Össurarson Skoðun Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun Vonandi endurtekur sagan sig! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Sjókvíafúskið mikla Rán Flygenring Skoðun Skoðun Skoðun Hverjum treystum við fyrir fjöreggjunum okkar? skrifar Skoðun Stöndum í lappirnar! Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Gjöf sem gefur Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Vegna hvers kýs ég Katrínu Jón Kristjánsson skrifar Skoðun Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Alþingi slátrar jafnræðisreglunni Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Málfarslöggan verk sín vann Ari Páll Kristinsson skrifar Skoðun Verðmæti Döff kjósenda Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Nýja hægrið Davíð Bergmann skrifar Skoðun Afhverju viltu fá trúð á Bessastaði? Diljá Ámundadóttir Zoega skrifar Skoðun Heldur þann besta en þann næstbesta! Vilhjálmur B. Bragason skrifar Skoðun Vel gert! Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Halla Hrund; vörður auðlinda og nýsköpunar Valdimar Össurarson skrifar Skoðun Forsetabaráttan: Hin fimm fræknu og leiðtogafræðin Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun Sýnileiki og styrkur þjóðar Ásdís Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Velferð fólks framar markaðsvæddri netsölu áfengis Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Halla Hrund, Halla Tómasdóttir eða Katrín Jakobsdóttir? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Það þarf þyrlupall við þjóðarsjúkrahúsið Hópur lækna á þyrlum Landhelgisgæslunnar skrifar Skoðun Vonandi endurtekur sagan sig! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Halla Hrund - Þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig? Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Kjósum sterkan leiðtoga Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Munu kosningar bjarga Bretlandi? Guðmundur Einarsson skrifar Skoðun Hvers konar bull er þetta ! Fjölnir Sæmundsson skrifar Skoðun Líkhús Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Áskorun til Hafnarfjarðarbæjar – Þjóðgarð á Reykjanes Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Svar til Páls Winkel Ólafur Ágúst Hraundal skrifar Skoðun Síðasti naglinn í líkkistu innanlandsflugs? Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Forseti lýðveldisins Erlingur Hansson skrifar Skoðun Grípum gullið tækifæri og sendum heiminum skýr skilaboð…aftur Svandís Ingimundardóttir skrifar Skoðun Við elskum föt, eða hvað? Magnús Sigurbjörnsson skrifar Sjá meira
Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar
Skoðun Grípum gullið tækifæri og sendum heiminum skýr skilaboð…aftur Svandís Ingimundardóttir skrifar
Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun