Íslenski boltinn

Annar sigur Keflvíkinga í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jeppe Hansen negldi síðasta naglann í kistu ÍR-inga.
Jeppe Hansen negldi síðasta naglann í kistu ÍR-inga. vísir/ernir
Eftir aðeins einn sigur í fyrstu fimm leikjum Inkasso-deildarinnar hefur Keflavík nú unnið tvo leiki í röð. Keflvíkingar lögðu ÍR-inga að velli, 1-3, í Mjóddinni í kvöld.

Hólmar Örn Rúnarsson kom Keflavík yfir á 25. mínútu en Andri Jónasson jafnaði metin fjórum mínútum fyrir hálfleik.

Á 57. mínútu kom Frans Elvarsson Keflavík aftur yfir eftir sendingu frá hinum 39 ára gamla Jóhanni Birni Guðmundssyni sem var nýkominn inn á sem varamaður.

Danski framherjann Jeppe Hansen kláraði svo leikinn þegar hann skoraði þriðja mark Keflvíkinga 10 mínútum fyrir leikslok.

Keflavík er í 3. sæti deildarinnar með 12 stig, fjórum stigum á eftir Fylki og Þrótti.

ÍR er í 9. sæti deildarinnar með sjö stig, tveimur stigum frá fallsæti.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×