Íslenski boltinn

Milos hefur reynst KR-ingum erfiður og getur sent þá niður í fallsæti í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Milos Milojevic hefur gengið vel á á móti KR undanfarið.
Milos Milojevic hefur gengið vel á á móti KR undanfarið. vísir/anton brink
Stórleikur kvöldsins í Pepsi-deild karla í fótbolta er viðureign KR og Breiðabliks á Alvogen-vellinum í vesturbæ Reykjavíkur en hann hefst klukkan 20.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.

Blikar voru togaðir aftur niður á jörðina í síðustu umferð eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum Milosar Milojevic sem þjálfari liðsins en Blikar töpuðu þá fyrir Val með flautumarki, 2-1.

Breiðablik er í áttunda sæti með níu stig, tveimur stigum meira en KR sem er búið að tapa þremur leikjum af síðustu fjórum og aðeins innbyrða eitt stig af tólf mögulegum í þeim leikjum.

Tapi KR í kvöld endar liðið í fallsæti ef ÍA vinnur Fjölni á Skaganum en Ólafsvíkingar geta líka komist upp fyrir KR vinni þeir Stjörnuna og KR tapar. Þar þarf aftur á móti fimm marka sveiflu til.

Það var kannski alveg það sem KR þurfti í kvöld að mæta Milosi Milojevic sem hefur haft góð tök á vesturbæjarliðinu undanfarin misseri. Hann hefur ekki tapað fyrir KR í fjórum leikjum í röð í öllum keppnum.

Milos var áður þjálfari Víkings og KR vann Víking í báðum leikjunum árið 2015. Eftir það stýrði Milos Víkingum fjórum sinnum á móti KR án þess að tapa en í fyrra náði hann fjórum stigum út úr leikjunum tveimur í Pepsi-deildinni með jafntefli á útivelli og sigri á heimavelli.

Liðin skildu svo jöfn, 1-1, í Reykjavíkurmótinu í janúar áður en Víkingar komu til baka í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar eftir að lenda 1-0 undir á Alvogen-vellinum og unnu, 2-1.

Það hjálpar ekki KR að liðið hefur ekki unnið Blika í Pepsi-deildinni síðan í maí 2014. Fjórir af síðustu fimm deildarleikjum Breiðabliks og KR hafa endað með jafntefli og Blikar unnu þann fimmta.

Tölfræðin er því ekki með KR fyrir kvöldið.

Dagskráin í kvöld:

19.15 ÍA - Fjölnir

19.15 FH - Víkingur R., Stöð 2 Sport 2 HD

19.15 Víkingur Ó. - Stjarnan

20.00 KR - Breiðablik, Stöð 2 Sport HD

22.00 Pepsi-mörkin

23.25 Síðustu 20




Fleiri fréttir

Sjá meira


×