Fótbolti

Aron Einar og Jóhann Berg hita upp fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Stöð 2 Sport

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kapteinn frábær mætir í settið á morgun.
Kapteinn frábær mætir í settið á morgun. vísir/getty
Stöð 2 Sport HD verður með veglega upphitun fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld þar sem Real Madrid og Juventus eigast við á Þúsaldarvellinum í Cardiff.

Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki Gje, sér um upphitun fyrir leikinn sem Guðmundur Benediksson lýsir en gestir Rikka í settinu verða ekkert slor.

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, og Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður, hita upp fyrir leikinn og gera hann upp að leik loknum.

Aron þekkir vel til í Cardiff en hann spilar með Cardiff City í ensku B-deildinni. Jóhann Berg Guðmundsson leikur með Burnley í ensku úrvalsdeildinni.

Upphitunin á Stöð 2 Sport HD hefst klukkan 18.00 en leikurinn klukkan 18.45. Bæði upphitunin og leikurinn sjálfur verða í opinni dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×