Innlent

Hættuleg ládeyða umferðarráðs

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ólafur Guðmundsson hjá EuroRAP.
Ólafur Guðmundsson hjá EuroRAP. mynd/eurorap
Ólafur Guðmundsson, tæknistjóri alþjóðlegu vegaöryggissamtakanna EuroRAP á Íslandi, segir það hafa bitnað á umferðaröryggi að engin starfsemi hafi verið undanfarin ár í fagráði um umferðarmál sem taka átti við verkefnum Umferðarráðs eftir 2013.

Fréttablaðið greindi frá því á þriðjudag að annað ráð, sem sett var á laggirnar með breytingum á sama tíma, fagráð um flugmál sem taka átti við af Flugráði, hafi aðeins fundað sex sinnum og ekki starfað síðan í október 2015. „Það er til skammar en fagráð umferðarinnar hefur ekki fundað í að minnsta kosti tvö ár. Og það er til enn meiri skammar af því að á því sviði erum við að tapa um tvö hundruð manns á ári í alvarlegum umferðarslysum og banaslysum,“ segir Ólafur.

Nýtt fagráð um umferðarmál var loks fullskipað í maí að sögn Guðbergs Reynissonar sendibílstjóra sem samgönguráðherra skipaði formann ráðsins fyrr á árinu. Guðbergur segir nýja ráðið hafa haldið sinn fyrsta fund 18. maí síðastliðinn þar sem kjörin hafi verið stjórn.

Guðbergur átti sæti í fyrra fagráðinu. Hann er annar tveggja stofnenda Facebook-síðunnar Stopp – hingað og ekki lengra, sem látið hefur til sín taka varðandi umferðaröryggismál.

Í fagráðinu eiga sæti um 25 fulltrúar frá ráðuneytum, stofnunum og hagsmunasamtökum. Ráðinu er ætlað að vera vettvangur samráðs og á að beita sér fyrir umferðaröryggi.

Ólafur segir að fagráðið hafi aðeins fundað örfáum sinnum í upphafi áður en það lagðist í dvala. Þetta verkleysi hafi haft neikvæð áhrif.

„Þessi vettvangur var mikilvægur í áratugi, þar sem yfir tuttugu aðilar hittust, fóru yfir stöðuna og fóru í aðgerðir. Nú er ekkert í gangi,“ segir Ólafur sem kveður slysatölur staðfesta þetta. Í fyrra hafi 233 alvarleg slys og banaslys orðið hérlendis.

„Það hefur verið afturför, bæði hvað varðar ástand vega, umferðaröryggi og árangur í fækkun slysa.“

Guðbergur segir mörg verkefni bíða; banaslysin séu orðin of mörg, vegakerfið þarfnist lagfæringa, erlendir ferðamenn þurfi fræðslu og auka þurfi virðingu í umferðinni. „Vonandi getum við lagt á vogarskálarnar til að bæta öryggi í umferðinni – það er stefnan.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×