Íslenski boltinn

Ævintýralegur sigur ÍR sem er komið upp úr fallsæti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
ÍR-ingar eru komnir með fyrsta sigurinn í Inkasso-deildinni.
ÍR-ingar eru komnir með fyrsta sigurinn í Inkasso-deildinni. vísir/anton
ÍR vann ótrúlegan sigur á Þór Ak., 2-1, í Mjóddinni í 5. umferð Inkasso-deildarinnar í dag.

Staðan var markalaus fram á 86. mínútu þegar Sveinn Elías Jónsson kom Þórsurum yfir og staða þeirra því orðin vænleg.

ÍR-ingar lögðu ekki árar í bátar og á lokamínútunni jafnaði Viktor Örn Guðmundsson metin með þrumufleyg fyrir utan teig.

Þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Sergine Modou Fall svo sigurmark ÍR-inga. Lokatölur 2-1, ÍR í vil.

Þetta var fyrsti sigur Breiðhyltinga í sumar og með honum komust þeir upp úr fallsæti. Þór er hins vegar í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.


Tengdar fréttir

Þróttur skaust á toppinn

Þróttarar eru komnir á topp Inkasso-deildarinnar eftir flottan 2-0 sigur á Keflavík í kvöld.

Bubalo kramdi hjörtu Leiknismanna

Fram lyfti sér upp í 2. sæti Inkasso-deildarinnar með dramatískum 1-2 sigri á Leikni F. fyrir austan í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×