Innlent

Landsmenn mega eiga von á skúrum

Atli Ísleifsson skrifar
Veður fer heldur kólnandi þegar norðanáttin sækir að.
Veður fer heldur kólnandi þegar norðanáttin sækir að. Vísir/Stefán
Austlæg átt verður ríkjandi á landinu í dag þar sem verður vætusamt suðaustantil, skýjað með köflum norðan- og vestanlands, en sums staðar skúrir, einkum síðdegis.

Á vef Veðurstofunnar segir að veður fari síðan heldur kólnandi þegar norðanáttin sækir að. „Væta með köflum norðanlands, líkur á sólarglennum sunnan- og vestanlands, en einnig síðdegisskúrum,“ segir á heimasíðunni.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag og miðvikudag:

Norðlæg átt, 5-13 m/s. Dálítil rigning N- og A-lands og slydda til fjalla, annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 4 til 13 stig, mildast á S-landi.

Á fimmtudag:

Norðlæg átt, skýjað og dálítil væta NV-til. Bjart með köflum S-lands, en líkur á síðdegisskúrum. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:

Norðlæg átt og rigning, en þurrt á S-verðu landinu. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast syðst.

Á laugardag:

Breytileg átt og skúrir á víð og dreif. Heldur hlýnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×