Enski boltinn

Þjálfari enska landsliðsins sendi leikmenn sína í herþjálfun um helgina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins.
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins. Vísir/Getty
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, hefur ekki miklar áhyggjur af því að leikmenn hans séu búnir á því eftir langt og strangt keppnistímabil.

Það var í það minnsta ekki boðið upp á rólegar æfingar þegar liðið hittist um helgina fyrir komandi leik við Skotland í undankeppni HM sem fer fram 10. júní næstkomandi.









Southgate sendi nefnilega leikmenn sína í æfingabúðir hjá breska sjóhernum og þar var ekkert ókeypis á þessum 48 tímum sem ensku landsliðsmennirnir reyndu að halda velli meðal bresku hermannanna.

Tuttugu leikmenn enska landsliðsins voru mættir en þeir Gary Cahill, Eric Dier, Chris Smalling, Jesse Lingard og Marcus Rashford sluppu hinsvegar við þetta mikla ævintýri um helgina.

„Við vildum setja strákana í annað umhverfi og fara með þá í kringumstæður sem þeir voru ekki að búast við. Við vildum sýna þeim að það er annar heimur þarna úti,“ sagði Gareth Southgate í viðtali við heimasíðu enska knattspyrnusambandsins.

Auk allra æfinganna þá þurftu ensku landsliðsmennirnir að gista í tjöldum eina nótt sem eitthvað sem þessi moldríku menn eru örugglega ekki vanir.



Enski landsliðshópurinn á móti Skotum og Frökkum:

Markmenn: Jack Butland (Stoke), Fraser Forster (Southampton), Joe Hart (Man City), Tom Heaton (Burnley)

Varnarmenn: Ryan Bertrand (Southampton), Gary Cahill (Chelsea), Aaron Cresswell (West Ham), Ben Gibson (Middlesbrough), Phil Jones (Man Utd), Chris Smalling (Man Utd), John Stones (Man City), Kieran Trippier (Tottenham), Kyle Walker (Tottenham)

Miðjumenn: Dele Alli (Tottenham), Eric Dier (Tottenham), Adam Lallana (Liverpool), Jesse Lingard (Man Utd), Jake Livermore (West Brom), Alex Oxlade-Chamberlain (Arsenal), Raheem Sterling (Man City)

Framherjar: Jermain Defoe (Sunderland), Harry Kane (Tottenham), Marcus Rashford (Man Utd), Jamie Vardy (Leicester).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×