Raunveruleg verðmætasköpun til framtíðar Kristian Matthiasson skrifar 6. júní 2017 10:29 Hér á Vestfjörðum hefur okkur hjá Arnarlaxi tekist að skapa fjölbreytt störf í verðmætri uppbyggingu án þess að fá styrki, lán né aðrar ívilnanir frá ríki eða sveitarfélögum. Smíði hátækni fóðurpramma eins og Arnarborgar sem við vorum að fá til landsins er stór fjárfesting fyrir ungt fyrirtæki en á sama tíma framfaraskref fyrir Arnarlax sem hefur jákvæð áhrif á byggðarþróun hér á vestfjörðum. Arnarborgin markar mikilvægt skref inn í framtíðina og staðfestir trú okkar á uppbyggingunni hér síðustu 8 ár. Uppbyggingu sem fór að blómstra þegar við hófum starfsemina á Bíldudal 2013 sem hefur vaxið með jákvæðum áhrifum fyrir allt samfélagið allt frá því við hófum laxeldi á sjó í Arnarfirði árið 2014 eða fyrir 3 árum. Á þessum stutta tíma hefur okkur tekist að skapa 120 störf og tugi annarra starfa sem tengjast þjónustu við okkur með beinum eða óbeinum hætti. Þar má nefna þjónustu iðnaðarmanna, gáma- og flutningsþjónustu, skipaafgreiðslu, köfun og margt fleira. Arnarborgin er gott dæmi um þá þróun sem hefur átt sér stað greininni á síðustu árum. Þróun á hátæknibúnaði sem tryggir besta fáanlega öryggi og heilbrigði laxins í gegnum allt ræktunarferlið. Þetta er í raun tæknibylting sem miðar öll að því að gera okkur kleift að rækta heilbrigðan fisk með nútímalegum umhverfisvænum aðferðum. Þar höfum við metnað til að vera í fararbroddi með leiðandi fyrirtækjum í greininni. Arnarborgin er áþreifanlegur hluti að því markmiði okkar. Verðmætasköpunin sem átti sér stað hjá Arnarlaxi í maí er í kringum 1000 milljónir. Vestfirðingar hafa allar forsendur til þess líta bjartsýnir til framtíðar fái laxeldið að vaxa og dafna eins og raun ber vitni.ArnarborgMargar mikilvægar fjárfestingar eru framundan sem munu stuðla að áframhaldandi uppbyggingu laxeldisins. Uppbyggingu sem mun staðfesta mikilvægi og verðmæti laxeldisins fyrir alla vestfirðinga. Við höfum nú þegar hafið undirbúning að smíði á öðrum pramma sambærilegum Arnarborginni og stækkunin á seiðastöðinni á Tálknafirði gengur vel. Í nútíma næringafræði er laxinn fremstur í flokki próteina sem ræktað er til manneldis. Laxinn er mikilvægur hluti reglulegra máltíða þeirra sem hafa tileinkað sér heilbrigðan lífstíl. Hann er ekki bara næringaríkur, hollur og góður. Laxinn er umhverfisvænasta prótein sem ræktað er í heiminum. Kolefnisspor laxeldisins er minna en í ræktun flestra landdýra og mun minna ferskvatn þarf til laxeldis í samanburði við aðra ræktun. Laxeldið leiðir af sér verðmætasköpun í meiri sátt við náttúruna og með margfalt minni fórnarkostnaði en nokkur stóriðja á Íslandi. Íslenski laxinn okkar, hefur nú þegar skapað sér sterka ímynd á alþjóðlegum mörkuðum. Daglega framleiðum við hjá Arnarlaxi 200.000 máltíðir. Tvöhundruð þúsund gæða máltíðir sem eru viðurkenndar af verslunarkeðjum og veitingastöðum í fremsta flokki þegar kemur að kröfum um hreinleika og gæði matvæla. Á meðal ánægðra viðskiptavina okkar er verslunarkeðja Whole Foods og veitingastaðir Jamie Oliver. Viðskiptavinir sem gera meiri gæðakröfur en flestir aðrir á markaðnum. Staðreyndirnar tala sínu máli. Hér hefur tekist að skapa farsæla ræktun á verðmætum hágæða laxi. Fyrsta flokks matvælum. Hér á sér stað raunveruleg verðmætasköpun sem nú þegar hefur bætt lífsgæði vestfirðinga, skapað fjölbreytt atvinnutækifæri og haft margvísleg jákvæð áhrif á þróun byggðarlagsins. Það er tilefni til að fagna áframhaldandi uppbyggingu á því farsæla laxeldi sem nú á sér stað hér á vestfjörðum og er svo sannarlega komið til að vera. Við eigum öll, að vera stolt af góðum árangri og jákvæðri uppbyggingu samfélagsins hér til framtíðar.Höfundur er forstjóri Arnarlax á Bíldudal. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Kosningar eru alltaf „taktík” Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Gildin sem sigldu forsetaembættinu í höfn Hugrún Sigurjónsdóttir Skoðun Verður þér að góðu? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, ,Hólmfríður Sigþórsdóttir Skoðun Gegnumlýsing - þankabrot frambjóðanda að loknu forsetakjöri Arnar Þór Jónsson Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu Skoðun Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verður þér að góðu? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, ,Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar Skoðun Kosningar eru alltaf „taktík” Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Gildin sem sigldu forsetaembættinu í höfn Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Gegnumlýsing - þankabrot frambjóðanda að loknu forsetakjöri Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrar hafa áhyggjur af valdbeitingu Tómas Ingvason skrifar Skoðun Taktísk skilyrðing umræðunnar skrifar Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Sjá meira
Verður þér að góðu? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, ,Hólmfríður Sigþórsdóttir Skoðun
Skoðun Verður þér að góðu? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, ,Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar
Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar
Verður þér að góðu? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, ,Hólmfríður Sigþórsdóttir Skoðun