Íslenski boltinn

Annar sigur Leiknis í síðustu þremur leikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leiknismenn virðast vera komnir á beinu brautina.
Leiknismenn virðast vera komnir á beinu brautina. vísir/eyþór
Leiknir R. lyfti sér upp í 6. sæti Inkasso-deildarinnar með 2-0 sigri á Selfossi í Breiðholtinu í kvöld. Þetta var annar sigur Leiknismanna í síðustu þremur deildarleikjum.

Þetta var aftur á móti annað tap Selfyssinga í síðustu fjórum leikjum en þeir eru í 4. sæti deildarinnar með 10 stig, fimm stigum á eftir toppliði Þróttar.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 62. mínútu kom Tómas Óli Garðarsson Leikni yfir með skoti í stöng og inn eftir undirbúning Arons Fuego Daníelssonar og Elvars Páls Sigurðssonar.

Á 76. mínútu skallaði Aron Fuego boltann svo á Ingvar Ásbjörn Ingvarsson sem skoraði annað mark heimamanna.

Fleiri urðu mörkin ekki og Leiknismenn fögnuðu góðum sigri.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×