Innlent

Slasaðist þegar hann varð fyrir mannlausum bíl á Amtmannsstíg

Gissur Sigurðsson skrifar
Maðurinn hafnaði undir bílnum og dróst með honum niður í Lækjargötu.
Maðurinn hafnaði undir bílnum og dróst með honum niður í Lækjargötu. Mynd/Karl
Karlmaður á  miðjum aldri slasaðist töluvert þegar hann varð fyrir mannlausum bíl á Amtmannsstíg í Reykjavík um klukkan 22 í gærkvöldi.

Maðurinn hafnaði undir bílnum og dróst með honum niður í Lækjargötu, þar sem bíllinn nam loks staðar.

Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans, en fréttastofu er ekki nánar kunnugt um líðan hans, eða hvernig það atvikaðist að bíllinn rann af stað, en Amtmannsstígur er nokkuð brattur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×