Íslenski boltinn

Willum komst ekki af Alþingi til þess að stýra KR

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Willum Þór drekkur kaffið sitt niður á Alþingi í kvöld.
Willum Þór drekkur kaffið sitt niður á Alþingi í kvöld. vísir/eyþór
Það er enginn Willum Þór Þórsson á bekknum hjá KR í kvöld þar sem það er brjálað að gera hjá honum niður á þingi.

Það er lokadagur Alþingi fyrir sumarfrí og þarf að klára ansi mörg mál áður en þingmenn geta farið í útilegu og hlustað á Helgu Möller. Það kemur því í hlut Arnars Gunnlaugssonar að stýra KR-liðinu í kvöld.

KR-ingar virtust sakna Willums í fyrri hálfleik í Breiðholti þar sem staðan var markalaus í leikhléi gegn ÍR.

Tobias Thomsen kom KR yfir í upphafi síðari hálfleiks þannig að Willum andar líklega aðeins léttar niður á Austurvelli.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×