Innlent

Allar líkur á að Píratar leggi fram vantrauststillögu á dómsmálaráðherra

Sigríður Á. Andersen mun standa af sér vantrauststillögu komi hún fram.
Sigríður Á. Andersen mun standa af sér vantrauststillögu komi hún fram. vísir/anton brink
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, segir allar líkur á að Píratar leggi fram vantrauststillögu á Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, felli meirihlutinn á þingi tillögu minnihlutans um að vísa dómaramálinu svokallaða aftur til ráðherrans svo hann rökstutt á fullnægjandi hátt tillögu sína um skipan 15 dómara við Landsrétt. Það hefur hann ekki gert að mati minnihlutans en því er meirihlutinn ósammála og telur að rökstuðningur ráðherrans sé fullnægjandi.

Sigríður leggur til að fjórir einstaklingar, tvær konur og tveir karlar, verði skipaðir sem ekki voru á lista hæfnisnefndar um þá fimmtán hæfustu til að gegna embætti dómara við Landsrétt. Þau eru öll héraðsdómarar og hefur ráðherra sagt að henni hafi ekki þótt hæfnisnefndin meta dómarastörf nægilega mikils þegar hún lagði mat á hæfi umsækjenda.

Jón Þór að ef frávísunartillagan fáist samþykkt sé ekki lengur forsenda fyrir vantrausti á ráðherra. Það verður þó að teljast ólíklegt að meirihlutinn samþykki að vísa málinu aftur til ráðherra en munu Píratar þá leggja fram tillögu um vantraust?

„Það er það sem við munum gera já, ég tel allar líkur á því,“ segir hann í samtali við Vísi.

Tillagan er tilbúin og standa Píratar einir að henni. Ekki er ljóst hvort að hinir stjórnarandstöðuflokkarnir muni styðja vantrauststillögu á ráðherrann. Samkvæmt heimildum Vísis að tillagan verður tillagan aldrei samþykkt; eins manns meirihluti stjórnarflokkanna mun halda komi hún fram.

Þingfundur hófst klukkan 19:49 í kvöld og lauk honum um tíuleytið. Hann átti svo að hefjast aftur klukkan 22:30 en hefur ítrekað verið frestað og á nú samkvæmt vef Alþingis að hefjast klukkan 23:45. Dagskrá fundarins liggur ekki fyrir og því ekki ljóst hvenær skipan dómara við Landsrétt verður tekin fyrir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×