Íslenski boltinn

Teigurinn: Ægir Jarl úti á þekju í Áskoruninni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Áskorunin er einn af föstu liðunum í Teignum, vikulegum þætti um Pepsi-deild karla í umsjón Guðmundar Benediktssonar og Bjarna Guðjónssonar.

Í Áskoruninni reyna leikmenn Pepsi-deildarinnar að líkja eftir frægu marki Arnórs Guðjohensen fyrir Val gegn Þrótti árið 1998.

Valsmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen, barnabarn Arnórs, og Grindvíkingurinn Alexander Veigar Þórarinsson hafa þegar tekið Áskoruninni.

Í þætti gærkvöldsins var svo komið að Fjölnismanninum Ægi Jarli Jónassyni sem var aðeins nokkurra mánaða gamall þegar Arnór skoraði markið fræga.

Í spilaranum hér að ofan má sjá hvernig Ægi Jarli tókst upp í Áskoruninni.


Tengdar fréttir

Teigurinn: Alexander Veigar tók Áskoruninni

Annar þátturinn af Teignum, vikulegum þætti um Pepsi-deild karla í umsjón Guðmundar Benediktssonar og Bjarna Guðjónssonar, var á dagskrá Stöðvar 2 Sports í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×