Íslenski boltinn

Þórsarar áfram stigalausir | Góðir útisigrar hjá Gróttu og HK

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þróttarar eru komnir upp í 4. sæti Inkasso-deildarinnar.
Þróttarar eru komnir upp í 4. sæti Inkasso-deildarinnar. vísir/ernir
Ófarir Þórs halda áfram en í dag tapaði liðið 2-1 fyrir Þrótti R. á útivelli í 3. umferð Inkasso-deildarinnar.

Þórsarar hafa tapað öllum þremur leikjum sínum í deildinni og féllu úr leik fyrir D-deildarliði Ægir í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins á þriðjudaginn var.

Þór leiddi í hálfleik þökk sé marki Sigurðar Marinós Kristjánssonar. Víðir Þorvarðarson jafnaði metin á 51. mínútu og þegar ein mínúta var til leiksloka skoraði Hlynur Hauksson sigurmark Þróttar sem er í 4. sæti deildarinnar.

Þróttarar urðu fyrir áfalli snemma leiks þegar Emil Atlason var borinn af velli, að því er virtist illa meiddur. Emil meiddist einnig illa í 3. umferð Pepsi-deildarinnar í fyrra.

Grótta gerði góða ferð á Selfoss og vann 0-1 sigur á heimamönnum.

Ásgrímur Gunnarsson skoraði eina mark leiksins á 63. mínútu. Seltirningar eru í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig en Selfyssingar í 2. sætinu með sex stig.

Selfyssingarnir Hafþór Þrastarson og Sigurður Eyberg Guðlaugsson voru báðir reknir út af í uppbótartíma. Selfoss hefur því fengið þrjú rauð spjöld í síðustu tveimur leikjum sínum.

HK lyfti sér upp í 3. sæti deildarinnar með góðum 1-3 útisigri á Leikni F. HK-ingar hafa nú unnið tvo leiki í röð.

Staðan var 1-1 í hálfleik. Javier Angel Del Cueto Chocano skoraði mark Leiknis en Viktor Helgi Benediktsson mark HK.

Hákon Þór Sófusson kom gestunum úr Kópavogi yfir á 50. mínútu og í uppbótartíma gulltryggði Grétar Snær Gunnarsson sigur þeirra. Grétar Snær, sem er lánsmaður frá FH, lék sinn fyrsta leik fyrir HK í dag og þakkaði fyrir sig með marki.

Leiknismenn eru í 10. sæti deildarinnar með eitt stig.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×