Lífið

Falleg íslensk heimili: Fólkið á bak við Happie Furniture býr í fallegri íbúð í Vesturbænum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg eign.
Falleg eign.
Hafsteinn Helgi og Guðrún Agla eru á bak við fyrirtækið Happie Furniture sem hefur slegið rækilega í gegn á húsgagnamarkaðnum hér á landi.

Parið býr í fallegri íbúð í Vesturbænum og var kíkt í heimsókn til þeirra í þáttunum Falleg íslensk heimili. Íbúðin er virkilega smekkleg og falleg eins og sást í þættinum.

Í Fallegum íslenskum heimilum fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×