Lífið

Falleg íslensk heimili: Stórbrotið einbýlishús eftir Gísla Halldórsson á Tómasarahaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Útsýnið af svölunum er magnað.
Útsýnið af svölunum er magnað.
Þetta glæsilega einbýlishús var um árabil heimili og vinnustaður arkitektsins Gísla Halldórssonar og er húsið jafnframt eitt hans merkasta verk en það stendur á Tómasarhaga í Vesturbæ Reykjavíkur.

Barnabarn Gísla, Margrét Leifsdóttir arkitekt, býr nú í húsinu ásamt fjölskyldu sinni. Gísli teiknaði húsið árið 1952 og það var tilbúið árið 1954.

Í síðasta þætti af Fallegum íslenskum heimilum var kíkt í heimsókn á Tómasarhaga.

Í Fallegum íslenskum heimilum fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×