Bílar

Verður Tucson annar N-bíll Hyundai?

Finnur Thorlacius skrifar
Hyundai Tucson.
Hyundai Tucson.
Hyundai hefur stofnað kraftabíladeildina N og ætlar á næstu árum að fjölga í hópi slíkra bíla. Hyundai hefur fyrir nokkru gefið upp að i30 bíllinn verður þeirra fyrstur, en nú bendir margt til þess að sá annar í röðinni verði jepplingurinn Tucson.

Hyundai hefur ýjað að því að Coupe útgáfa af i30 og Velostar bíll Hyundai muni einnig fá N-útgáfur. Það gæti þó skilað Hyundai meiru að framleiða N-útgáfu af hinum vinsæla jepplingi Tucson og líklega myndu fleiri eintök af slíkum bíl seljast en af fólksbílaútgáfum N-kraftabíla, enda öskrar heimurinn á jepplinga í hvaða formi sem þeir koma.

Svo rammt kveður við í þessum efnum að í sumum stærðarflokkum fólksbíla hefur orðið 20% minnkun í sölu en sala jepplinga eykst stöðugt. Hyundai mun kynna sinn fyrsta N-kraftabíl, Hyundai i30 N seinna á þessu ári og vonandi mun Tucson N koma í kjölfarið fljótlega á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×