Lífið

Falleg íslensk heimili: Sveitarómantík í nýuppgerðu einbýlishúsi á Reyðarfirði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallegt hús.
Fallegt hús.
Á Reyðarfirði búa borgarbörnin Ingibjörg Karlsdóttir og Ingólfur Tómas Helgason en þau fluttust austur úr borginni og hafa sjálf tekið í gegn hús sem stendur við Stekkjarbrekku 2.

Húsið er byggt árið 1980 og var að mestu leyti upprunalegt þegar þau fluttu á Reyðarfjörð. Þau hreinsuðu allt út og var skipt um allt frá a-ö.

Í síðasta þætti af Fallegum íslenskum heimilum var kíkt í heimsókn á Reyðarfjörð.

Í Fallegum íslenskum heimilum fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×