Innlent

Hrollvekjur og dróni í grunnskólakeppni

Sunna Sæmundsóttir skrifar
Stuttmyndahátíð grunnskólabarna í Reykjavík fór fram í dag en yfir níutíu myndir bárust í fjórum flokkum. Bestu verkin voru verðlaunuð í Bíó Paradís í dag.

Viðfangsefnin voru fjölbreytt í þessari elstu kvikmyndahátíð landsins sem haldin var í 29. skipti. Keppt var í yngri og eldri flokkum með stuttmyndir, heimildarmyndir og tónlistarmyndbönd. Erla Stefánsdóttir sem hefur haldið utan um keppnina í átta ár segir framlögin verða sífellt betri samhliða tækniframförum. „Þetta er mjög fjölbreytt í ár. Það hefur oft verið mikið um eineltisefni. En í ár var þetta léttara og meira um hryllingsmyndir," segir Erla létt í bragði. 

Fjórir strákar úr tíunda og áttunda bekk Rimaskóla stóðu saman að gerð hryllingsmyndar sem er þó ekki gerð til að hræða úr fólki líftóruna. „Þetta er hrollvekja og fjallar um mann sem fer inn á klósett og festist þar inni. Þá byrjar sturluð atburðarrás sem ég vil helst ekki gefa upp," segir Alexander Þór Gunnarsson.

Kristín og Urður gerðu tónlistarmyndband við frumsamið lag sem vann í eldri flokki tónlistar. Lagið á að varpa ljósi á einelti. „Þetta fjallar um að maður eigi ekki að leyfa fólki að vera leiðinlegt við sig og svo langaði okkur í myndbandinu að sýna borgina," segir Urður Þórsdóttir. Innblásturinn segir hún koma frá fólki í kringum sig.

Aðrar stelpur úr fóru óhefðbundnar leiðir og vildu láta áhorfendum líða óþægilega. „Þetta á að vera svona trylli-mynd. Maður hlær og líður óþægilega en svona góð-óþægilega. Þetta er svolítið eins og The Shining," segir Katla Njálsdóttir.

Fyrsta drónamyndbandið vann til verðlauna í keppninni í ár en höfundur þess segist hvergi fara án tækisins. „Ég og pabbi minn ferðumst mjög mikið um landið á breyttum bílum og höfum gaman að því að ferðast. Ég tek alltaf drónann með," segir Arnþór. Aðspurður hvort hann ætli að leggja þetta fyrir sig í framtíðinni svarar hann að stefnan sé sett á kvikmyndanám. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×