Bílar

Porsche 718 frumsýndur

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche 718 Cayman verður frumsýndur á fjölbreyttri Sportbílasýningu Porsche hjá Bílabúð Benna á morgun, laugardag. Margt annað frá Porsche mun þó gleðja augað.
Porsche 718 Cayman verður frumsýndur á fjölbreyttri Sportbílasýningu Porsche hjá Bílabúð Benna á morgun, laugardag. Margt annað frá Porsche mun þó gleðja augað.
Hjarta sportbílaunnenda tekur kipp þegar sumarið gengur í garð. Nú er spennandi laugardagur í vændum; Bílabúð Benna, umboðsaðili Porsche á Íslandi, ætlar að fagna sumarkomunni með Porsche Sportbílasýningu. Það sem hæst mun bera er frumsýning á Porsche 718 Cayman.

Þá mun eldri kynslóðum af Porsche 911 verða stillt upp á sýningarsvæðinu. Þannig gefst tækifæri til að skoða þessa goðsögn sportbílanna, Porsche 911, í sögulegu samhengi. Að sjálfsögðu munu líka nokkrir glæsilegir Porsche Macan, Cayenne og Panamera skarta sínu fegursta fyrir sýningargesti. 

Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi: „Við erum óhædd við að fullyrða að fátt geti jafnast á við ökuferð í Porsche á íslenskum sumardegi. Þá fá yfirburða eiginleikar bílsins að njóta sín við bestu skilyrði. Við ætlum sem sagt að framkalla Porsche fiðringinn, hinn eina sanna, á Sportbílasýningu Porsche.“ segir Thomas Már.  Sportbílasýningin fer fram í Porsche-salnum, Vagnhöfða 23, laugardaginn frá kl. 12  til 16. Allir eru velkomnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×