Innlent

Sjúkraflutningamenn í hlutastarfi fá þriðjungs launahækkun og lengri uppsagnarfrest

Atli Ísleifsson skrifar
Stefán Pétursson er formaður LSOS.
Stefán Pétursson er formaður LSOS. Vísir/Stefán
„Ég er mjög sáttur,“ segir Stefán Pétursson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, um nýgert samkomulag um laun og kjör sjúkraflutningamanna í hlutastarfi sem starfa hjá ríkinu.

Samkomulag náðist loks nú síðdegis í deilunni milli samninganefnda LSOS og ríkisins.

Stefán segir að með samningnum sé búið að lengja uppsagnarfrest sjúkraflutningamanna úr 28 dögum í þrjá mánuði líkt og hjá öðrum opinberum starfsmönnum. „Þetta var eitt af stóru málunum. Það er hundfúlt að vinna í fimmtán, tuttugu ár, hjá sama atvinnurekanda og eiga bara mánaðar uppsagnarfrest.

Annað mál er að með þessum samningi eru hlutastarfandi sjúkraflutningamenn að fá heilt yfir um 30 til 35 prósenta launahækkun. Veikindaréttur, orlofsréttur, það er allt stórbætt,“ segir Stefán, en um níutíu hlutastarfandi sjúkraflutningamenn starfa nú hjá ríkinu og nær samningurinn til þeirra allra.

Samningurinn er þess eðlis að ekki verður kosið um hann meðal félagsmanna. „Við lögðum áherslu á það í viðræðum okkar við ríkið að kalla þetta kjarasamning, en samninganefnd ríkisins vildi frekar kalla þetta samkomulag. Við sögum þá „allt í lagi, ef þetta verður kallað samkomulag þá náum við fram alvöru kjarasamningi árið 2019.“ Þeir samþykktu það,“ segir Stefán.



Nýr samningur 2019

Samningurinn nær til ársins 2019, þegar samningur þeirra sem hafa sjúkraflutninga að aðalatvinnu rennur út. „Þá ætlum við að semja um alvöru kjarasamning, bæði fyrir þá sem starfa við þetta í fullri vinnu og hlutastarfandi. Við túlkum þetta hins vegar sem alvöru kjarasamning. Þetta er í fyrsta sinn sem hlutastarfandi sjúkraflutningamenn fá alvöru samning. Hingað til hafa þeir einungis haft eitthvert samkomulag við fjármálaráðherra.“

Stefán segir að búið sé að senda samninginn til félagsmanna sem eru nú að kynna sér hann. „Ég er mjög sáttur. Varaformaður og framkvæmdastjóri eru báðir mjög sáttir.“

Skoða má samninginn á heimasíðu LSOS.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×