Glamour

David Beckham leikur í sinni fyrstu kvikmynd

Ritstjórn skrifar
David er líklegast sáttur með að hafa fengið lítíð hlutverk í kvikmyndinni.
David er líklegast sáttur með að hafa fengið lítíð hlutverk í kvikmyndinni. Vísir/AFP
Íþróttamaðurinn David Beckham er greinilega margt til listanna lagt þar sem hann hefur nú leikið í sinni fyrstu kvikmynd. Beckham fer með lítið hlutverk í kvikmyndinni King Arthur, sem er leikstýrð af Guy Ritchie. 

Beckham leikur sjálfumglaðan riddara sem atast í King Arthur, líkt og sjá má á klippunni hér fyrir neðan. 

Þrátt fyrir að hafa aðeins verið með 13 línur í myndinni segir David að hann hafi æft sig óhóflega mikið. Því hafi hann verið vel undirbúinn fyrir sína fyrstu kvikmynd.






×