Fótbolti

Þurrkatíð hjá Elíasi Má og félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elías Már á enn eftir að skora á tímabilinu.
Elías Már á enn eftir að skora á tímabilinu. vísir/getty
Elías Már Ómarsson var í byrjunarliði IFK Göteborg sem tapaði 1-0 fyrir Djurgården á útivelli í lokaleik 8. umferðar sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Göteborg hefur ekki farið vel af stað á tímabilinu og situr í 10. sæti deildarinnar með 10 stig.

Þetta var aðeins annar leikur Elíasar í byrjunarliði Göteborg á tímabilinu. Hann var tekinn af velli á 68. mínútu. Ellefu mínútum síðar skoraði Jesper Karlström sigurmark Djurgården.

Elías kom til Göteborg frá Vålerenga um mitt síðasta tímabil. Keflvíkingurinn stimplaði sig vel inn í liðið og skoraði sex mörk í 13 deildarleikjum í fyrra. Hann bíður hins vegar enn eftir sínu fyrsta marki í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×