Lífið

Sjáðu fyrstu stikluna úr nýrri þáttaröð af Will og Grace

Anton Egilsson skrifar
Gaman að sjá þau Will, Grace, Karen og Jack aftur á skjánum.
Gaman að sjá þau Will, Grace, Karen og Jack aftur á skjánum. Mynd/NBC
Fyrsta stiklan úr nýrri þáttaröð gamanþáttanna Will og Grace var birt fyrr í dag. Þættirnir sem slógu í gegn í kringum aldamótin snúa aftur á skjáinn á NBC sjónvarpsstöðinni í haust.

Þau Eric McCormack, sem lék Will Truman, og meðleigjandi hans Grace Adler, sem leikin var af Debru Messing, munu þá leiða saman hesta sína ásamt þeim Megan Mullally (Karen Walker) og Sean Hayes (Jack McFarland) eins og sjá má í stiklunni. Dagsetning fyrsta þáttarins liggur þó enn ekki fyrir.

Þátturinn Will og Grace naut mikilla vinsælda á árabilinu 1998 til 2006 en í heildina voru gerðar átta sjónvarpsseríur. Á meðan á göngu hans stóð fékk þátturinn alls 24 tilnefningar til Golden Globe verðlaunanna en bar þó aldrei sigur úr býtum.

Stikluna má sjá hér að neðan. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×