Bílar

Honda Civic Type R rúllar á Nürburgring

Finnur Thorlacius skrifar
Hondan við það að rúlla á þakið og þannig endaði bílferðin þann daginn.
Hondan við það að rúlla á þakið og þannig endaði bílferðin þann daginn.
Óheppin eru tíð á Nürburgring brautinni þýsku en þar reyna flestir að ná sem bestum tíma á 20 km langri brautinni og sumir þeirra í viðleitni sinni til að slá met í hinum ýmsu flokkum bíla. Á þessu fékk Honda Civic Type R að kenna þegar ökumaður hans ofgerði bílnum í krappri beygju en hann var ekki á vegum Honda í brautinni, heldur á sínum eigin bíl sem væntanlega er erfitt að tryggja fyrir svona slysum. Hann ber því líklega tjónið alfarið sjálfur.

Það er reyndar Honda Civic Type R sem á metið á Nürburgring brautinni á meðal fjöldaframleiddra framhjóladrifsbíla, enda er hann 306 hestafla spyrnukerra með mikla akstursgetu, en eins og hér sést má ofgera bílnum samt. Ökumanninn sakaði ekki í þessari veltu og steig hann fljótlega, nokkuð skelkaður þó, út úr bíl sínum.

Sem betur fór voru þeir tveir Porsche bílar sem á eftir komu ekki mjög nálægt Honda bílnum og náði að stoppa í tæka tíð. Það skýrir kannski betur út veltuna að hafa tvo slíka bíla í baksýnisspeglinum og ef til vill hafa hug á því að halda þeim fyrir aftan sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×