Innlent

Umdeild sameining skóla til umræðu í Víglínunni

Anton Egilsson skrifar
Áform um sameiningu Tækniskólans og Fjölbrautaskólans við Ármúla verða til umræðu í Víglínunni í beinni og opinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 12.20.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks, Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður VG og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir munu ræða þetta mál og önnur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra mætir einnig í þáttinn til að ræða kvótamál og breytingar í landbúnaðarmálum.

Víglínan er þjóðmálaþáttur á vegum fréttastofu Stöðvar 2. Í þættinum er fjallað um allt það helsta sem í þjóðmálaumræðunni hverju sinni. Víglínan er í opinni dagskrá á hverjum laugardegi klukkan 12:20.

Hægt er að fylgjast með útsendingunni í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×