Glamour

Anna Wintour heiðruð af bresku krúnunni

Ritstjórn skrifar
Anna Wintour hefur látið til sín taka í tískuheiminum.
Anna Wintour hefur látið til sín taka í tískuheiminum. Mynd/Getty
Hin 67 ára Anna Wintour hefur nú fengið eina hæstu viðurkenningu sem hægt er að öðlast frá bresku krúnunni. Hún var á dögunum sæmt orðu sem ber nafnið "Dame Commander of the Order of the British Empire". 

Það eru aðeins útvaldir sem fá slíkan heiður. Samkvæmt yfirlýsingu frá Buckingham höllinni er óendanlegt framlag Önnu til tískuheimsins ómetanlegt. 

Árið 2008 hlaut Anna OBE orðuna eða "Officer of the Most Excellent Order of the British Empire". Breska krúnan er þó greinilega ánægð með störf Önnu og því mikilvægt að hún fái enn meiri viðurkenningu frá heimalandi sínu.






×