Lífið

Könnun: Kemst Svala upp úr riðlinum?

Svala stóð sig virkilega vel á rauða dreglinum í Kænugarði.
Svala stóð sig virkilega vel á rauða dreglinum í Kænugarði.
Það styttist óðum í stóru stundina þar sem Svala okkar Björgvins stígur á stokk á sviðinu í Kænugarði og syngur lag sitt, Paper, fyrir Evrópubúa.

Svölu hefur að sögn fréttaritara Vísis í Kænugarði gengið afar vel bæði á æfingum og svo í dómararennslinu í gær auk þess sem töluverður áhugi hefur verið á  henni meðal blaðamanna ytra.

Íslendingar virðast upp til hópa frekar bjartsýnir fyrir kvöldinu ef marka má samfélagsmiðla en veðbankar eru ekki jafnbjartsýnir og telja að Svala komist ekki áfram. En hver hefur rétt fyrir sér? Það kemur ekki í ljós fyrr en í kvöld en þú getur greitt atkvæði þitt í könnuninni hér að neðan.

Áfram Svala!

 


Tengdar fréttir

Eurovision-réttir Evu Laufeyjar

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir er einn vinsælasti sjónvarpskokkur landsins og hefur hún tekið saman sniðuga Eurovision-rétti sem hægt er að skella í á kvöldi sem þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×