Innlent

Vatn úr þvottavél flæddi út um allt

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Slökkvilið var að störfum í um einn og hálfan tíma.
Slökkvilið var að störfum í um einn og hálfan tíma. Vísir/Stefán
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna vatnsleka í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gærkvöldi. Vatn hafði lekið úr þvottavél á heimilinu og flætt um gólf íbúðarinnar.

Var slökkviliðið um einn og hálfan tíma að þurrka upp vatnið af gólfum íbúðarinnar en óvíst hversu mikið tjón varð vegna lekans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×