Innlent

United Silicon fékk frest til mánudags

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Kísilver United Silicon í Helguvík var gangsett um miðjan nóvember í fyrra.
Kísilver United Silicon í Helguvík var gangsett um miðjan nóvember í fyrra. Vísir/Vilhelm
Síðastliðinn þriðjudag sendi Umhverfisstofnun forsvarsmönnum Kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík bréf þess efnis að slökkva ætti á starfsemi verksmiðjunnar vegna óviðunandi skilyrða. Fyrirtækið hafði til dagsins í dag að andmæla lokuninni en fyrirtækið hefur beðið um frest fram á mánudag til að skila inn svörum til Umhverfisstofnunar.

Ljósbogaofn í kísilverinu í Helguvík hefur aldrei virkað sem skyldi á þeim fimm mánuðum sem verksmiðjan hefur verið starfandi. United Silicon á í viðræðum við framleiðenda ofnsins um galla á ofninum en á landinu eru sérfræðingar frá norska ráðgjafarfyrirtækinu Multiconsult til að komast að því hvað veldur stöðugri ólykt frá verksmiðjunni auk þess sem fyrirtækið nýtur aðstoðar Matvælastofnunar.

Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri UST.
Slökkt hefur verið á ofninum eftir að bruni kom upp í verksmiðjunni aðfaranótt þriðjudags og verður hann ekki ræstur aftur nema með heimild Umhverfisstofnunar. Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, segir að ákvörðun um framhaldið verði væntanlega tekin næsta þriðjudag.

„Fyrirtækið óskaði eftir framlengingu á þessum fresti til að svara þessu bréfi. Þar sem við náum ekki að hitta þá fyrr en seinni partinn í dag með þeirra erlendu sérfræðingum og MATÍS þá veittum við þeim frest til miðnættis á mánudag enda er fyrirtækið stopp og ekki á leiðinni að fara af stað á næstunni,“ segir Kristín Linda.

„Við viljum auðvitað bara komast til botns í málinu og munum taka ákvörðun um framhaldið á þriðjudaginn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×