Lífið

The Rock setur 16 mánaða dóttur sinni metnaðarfull markmið

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Dwayne Johnson og Lauren Hashian
Dwayne Johnson og Lauren Hashian vísir
Dwayne „The Rock“ Johnson virðist ekki ætla að eyða mínútu af uppeldi 16 mánaða dóttur sinni í neitt kjaftæði. Hann hefur sett henni afar metnaðarfull markmið þangað til hún verður tíu ára gömul.

The Rock, sem er einna best þekktur fyrir leik sinni í Fast and the Furious myndunum, setti markmiðin fram á Instagram-síðu sinni á dögunum

Þegar Jasmine, dóttir Klettsins, verður fimm ára á hún að geta horft beint í andlitið á fólki á sama tíma og hún tekur þéttingsfast í hendur þeirra.

Þegar hún er átta ára á hún að geta veitt, keyrt pallbíl pabba síns og framkvæmt ýmsar líkamsræktaræfingar. Við 10 ára aldur á hún að geta hvatt fólk til þess að gera enn betur.

Ágætis áætlun en líkt og The Rock greinir frá virðist hin 16 mánaða gamla Jasmine ekki hafa mikinn áhuga á markmiðunum, enn sem komið er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×