Lífið

Zach Holmes lætur strákana í Jackass líta út eins og kettlinga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það muna eflaust margir eftir strákunum í Jackass þar sem þeir Steve-O, Johnny Knoxville og félagar fóru á kostum í raunveruleikaþættinum á MTV sem gekk hreinlega út á það að gera eins heimskulega hluti og hægt er.

Íslandsvinurinn Steve-O kynnir til leiks ofurhugann Zach Holmes á Facebook-síðu sinni og virðist sem hann hafi hreinlega fundið mann sem er enn bilaðri en þeir félagar í Jackass.

Steve-O deilir myndbandinu þar sem sjá má Holmes gera hluti sem Vísir mælir eindregið með lesendur láti vera. Steve-O hitti drenginn á dögunum og sá Holmes renna sér á hjólabretti niður ramp og stökkva inn í mörg hundruð kaktusa. Útkoman er skelfileg eins og sjá má hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×