Innlent

Strákarnir eru mun hamingjusamari

Sæunn Gísladóttir skrifar
Íslenskir strákar sem þreyttu PISA-prófið voru almennt ánægðari með lífið en stelpur.
Íslenskir strákar sem þreyttu PISA-prófið voru almennt ánægðari með lífið en stelpur. Vísir/HAG
Íslenskir unglingar eru hamingjusamari en meðalunglingur, samkvæmt niðurstöðum PISA-rannsóknar Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sem fór fram árið 2015.

Strákar eru almennt ánægðari með lífið en stelpur og hvergi er meiri munur milli kynja á lífshamingju en á Íslandi.

Árið 2015 var vellíðan þátttakenda í fyrsta sinn mæld í PISA-könnuninni sem 15 ára unglingar út um allan heim taka. Almennt eru nemendur tiltölulega ánægðir með líf sitt, stress vegna skólaverkefna og einelti dregur þó úr ánægju þeirra.

Í öllum þátttökuríkjum mælast strákar ánægðari með lífið en stelpur. Tæplega 18 prósenta munur er á lífshamingju stráka og stelpna á Íslandi. Meðal útskýringa fyrir kynjamuninum er að mati OECD að á þessum aldri séu stelpur að færast úr því að vera börn í að verða fullorðnar og að sjálfsgagnrýni, meðal annars vegna útlits, geti verið mikil á þeim tíma.

Gyða Margrét Pétursdóttir, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands. Mynd/Aðsend
Gyða Margrét Pétursdóttir, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands, tekur undir þessa skýringu.

„Þessar hugmyndir og skilaboð samfélagsins varðandi útlitið og annað fer að hafa áhrif á stúlkur á þessum aldri. Skilaboðin eru að þær séu ekki nógu góðar hvort sem það varðar útlit eða annað.

Það er sérstakt rannsóknarefni hvers vegna hér mælist meiri munur en annars staðar. Við höfum haft þessa þekkingu, að stúlkum líður verr en drengjum, um nokkurt skeið en ég hef ekki séð þennan samanburð áður, það er mikilvægt að skoða þetta,“ segir hún.

Þar sem Ísland mælist með minnsta kynjabil í heimi á flesta mælikvarða sem rannsakaðir eru segir Gyða að velta megi fyrir sér hvort við höfum ákveðnar væntingar um að samfélagið sé með ákveðnum hætti. En síðan sé upplifun okkar kannski ekki í takt við þær væntingar og það geti skapað meiri óánægju.

Vísbendingar eru um að stelpur upplifi meira kvíða en strákar. Í öllum þátttökuríkjum greina stelpur frá meiri kvíða en strákar.

Strákar eru að meðaltali 13 prósentum ólíklegri til að segjast vera stressaðir þegar þeir eru að læra en stelpur.

Um 64 prósent stúlkna en 47 prósent stráka segjast kvíða prófum jafnvel þegar þau eru vel undirbúin, kynjamunurinn er sérstaklega áberandi á Norðurlöndunum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×