Lífið

Húllað af skærri gleði

Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar
Unnur María Bergsveinsdóttir.
Unnur María Bergsveinsdóttir. Vísir/GVA
Unnur María Bergsveinsdóttir lærði sagnfræði en hefur nú sirkuslistir að aðalstarfi. Hún hefur náð undraverðum tökum á því að húlla og sýnir nú og kennir öðrum listina.

Húllatrixin skemmtileg

Unnur var að kenna loftfimleika og sirkuslistir við Æskusirkusinn þegar hún ákvað að læra nokkur húllatrix til að bæta við sig sem kennari. „Ég fattaði fljótt hvað húllahringurinn er ótrúlega skemmtilegur og það varð ekki aftur snúið. Húllað er mjög fjölbreytilegt, bæði hvað varðar tækni og stíl og möguleikarnir á því að blanda saman trixum eru óendanlegir,“ segir Unnur en hún mælir með að húlla daglega til að ná góðri leikni í listinni. „Og njóta þess að húlla, leyfa hringnum að taka stjórnina og leiða þig trix frá trixi.“

Spurð um hvað henni finnist skemmtilegast við að húlla segir Unnur að það geri hana einfaldlega mjög glaða að húlla við skemmtilega tónlist.

„Svo finnst mér líka mjög vænt um hvað ég hef kynnst mörgu og góðu fólki í gegnum húllað. Ég er dugleg að fara á námstefnur erlendis, bæði til að læra og sýna. Mikilvægt er að sækja sér sífellt nýja þekkingu. Það er gott að læra af Youtube en ekkert jafnast á við það að læra af góðum kennara í hópi áhugasamra nemenda. Svo eru húllarar líka svo frábær og samheldinn hópur. Ég á núna góðar húllavinkonur um allan heim og í því er heilmikill stuðningur fólginn og gleði. Það er gaman að fylgjast með hverri annari vaxa sem húllarar í gegnum Facebook og Instagram og hittast á húllanámstefnum um allan heim.“

Húllað er mjög fjölbreytilegt, bæði hvað varðar tækni og stíl, að sögn Unnar. MYND/GVA

Gott fyrir heilsuna

Húllað er ekki aðeins skemmtilegt, það hefur líka góð áhrif á líkamlega jafnt sem andlega heilsu. „Húllað bæði eykur þol og styrkir vöðva, sérstaklega miðjuvöðva líkamans; bak, maga og hliðar. Húllað liðkar hreyfingar og bætir líkamsstöðu, jafnvægisskyn og líkamsvitund. Svo brennir húllað auðvitað líka heilmörgum hitaeiningum, eða álíka og skokk eða hröð ganga. Síðan er húllað gott fyrir andlega heilsu. Mér finnst erfitt að hugleiða en á afar auðvelt með að tæma hugann þegar ég húlla, svo það er mín hugleiðsla,“ segir Unnur.

Er komið húllaæði á Íslandi?

„Veistu, ég sé hilla í það! Og ég mun að sjálfsögðu gera allt það sem ég get til að kynda undir því. Ég held úti mánaðarlegu Húllafjöri á eigin vegum. Seltjarnarnesbær hefur reynst mér afar vel og ljáð mér afnot af Eiðistorgi og aðgang að hljóðkerfi til að lífga upp á Húllafjörið með góðri tónlist. Allir eru velkomnir á Húllafjör, bæði stórir og litlir. Ég á fullt af húllahringjum; litla krakkahringi, fullorðinshringi og risahringi. Þátttakendur prófa að húlla, ég geng á milli, gef góð ráð og kenni skemmtileg trix. Mér finnst gaman að sjá krakka og fullorðna fyllast gleði yfir því að húllahringurinn sé farinn að láta að stjórn. Það er mikilvægt að allir sem hafa áhuga á að húlla geti komið og lært grunnatriðin hjá góðum kennara án fyrirhafnar eða kostnaðar. Mér skilst svo að ég sé eini fullorðinshúllahringjasali landsins en það er mikilvægt að fólk sé með húllahring við hæfi og hann sé ekki of lítill og léttur,“ segir Unnur sem stefnir á að halda húllanámskeið síðla sumars fyrir fólk á öllum aldri.

„Svo er sífellt að færast í aukana að fyrirtæki og stofnanir, t.d. skólar, ráði mig til sín með húllasýningu og Húllafjör í kjölfarið. Síðan fer ég líka í fyrirtæki með Húllafjör sem hópefli og blanda þá inn í leikjum og áskorunum. Það geta allir húllað með réttum leiðbeiningum og það er ótrúlega gaman.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×