Vegna strandveiða Gunnar I. Guðmundsson skrifar 25. apríl 2017 13:45 Sjómannasamband Íslands og Farmanna- Og Fiskimannasamband Íslands skiluðu nýverið inn umsögnum um strandveiðifrumvarp Pírata. Bæði félögin skrifuðu á þann veg að staðreynd væri að auknar aflaheimildir til strandveiða þýddu minni veiðar fyrir atvinnusjómenn. Í frétt í Fréttablaðinu 24. apríl er vitnað í umsögn Sjómannasambandsins og hið sama haft eftir Valmundi Valmundssyni, formanni sambandsins. Ég vil benda á að nálgun beggja félaganna gengur út frá því að ætlun frumvarpsins sé að taka aflaheimildir úr kerfinu sem fyrir er og færa þær í strandveiðar. Það er rangt. Frumvarpið er skýrt hvað þetta varðar og er ætlunin að skapa þessar aflaheimildir hliðstætt við það kerfi sem er í dag. Því kemur engin skerðing til á þá sem fyrir eru í greininni. Nálgun Pírata gengur út á breytta aflareglu sem miðar að því að veiðar verði 22% af heildarstofni þorsks í stað 20%. Í frumvarpinu er það skýrt að þau 20% sem nú er aflað af skipum innan aflamarkskerfisins verði áfram þar og því er engin skerðing á þann sjávarútveg. Ég hefði haldið að félögin myndu styðja slík áform, þar sem fjöldinn allur af þeirra félagsmönnum stunda veiðarnar sem sína atvinnu. Það kemur mér verulega á óvart að hvorugt félagið hafi farið í efnislega umræðu við sína félagsmenn um frumvarpið og ekki kynnt sér það ítarlega áður en lagt er á stað í aurburð um innihaldið. Fjöldi sjómanna hefur haft samband við mig og hvatt mig áfram í þessari baráttu og því verð ég að spyrja hvort forkólfar SÍ og FFSÍ hafi átt einhvern orðastað við sjómenn upp á síðkastið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Það sem býr í Höllu Hrund Viðar Hreinsson Skoðun Málið á að endurspegla fólkið í landinu Birta Björnsdóttir Skoðun Okkar forseti Þráinn Farestveit Skoðun Garðbæingur á ímyndunarbömmer í Nígeríu Kristín Ólafsdóttir Skoðun Katrín eða Halla Hrund? Reynir Böðvarsson Skoðun Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað Skoðun Versta kerfi í heimi? Sigurjón Þórðarson Skoðun Ekki hika við að kjósa með hjartanu Rósa Steinunn Solveigar Sturludóttir Skoðun Starfsgetumat gæti kostað líf Svanberg Hreinsson Skoðun Hreyfing og tengsl Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fjarheilbrigðisþjónusta Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Ég Gísli Hvanndal Jakobsson ætla í framboð til Alþingis með Vinstri grænum Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Forsetaframbjóðandi með sömu tölu og Jesú Gunnar Karl Halldórsson skrifar Skoðun Einfaldara fyrirkomulag tilvísana Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Málið á að endurspegla fólkið í landinu Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Hreyfing og tengsl Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir skrifar Skoðun Eru byssur meira fullorðins? Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Ríkisbáknið fyrir sig Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Hjartastaður – hvaðan ertu? Anna Sigríður Melsteð skrifar Skoðun Er Evrópa að hverfa af kortinu? Guðmundur Einarsson skrifar Skoðun Garðbæingur á ímyndunarbömmer í Nígeríu Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Úkraínustríðið, skotvopnakaup Íslands og NATO? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Okkar forseti Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Ekki hika við að kjósa með hjartanu Rósa Steinunn Solveigar Sturludóttir skrifar Skoðun Tíminn er núna, stöðvum hvalveiðar! Hópur andstæðinga hvalveiða skrifar Skoðun Starfsgetumat gæti kostað líf Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Starfsgetumat er kerfisbreytingin - ekki dass af báðu í mixtúru fyrir aumingja! María Pétursdóttir skrifar Skoðun Það sem býr í Höllu Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Grjótmulningsverksmiðja umfram blómleg tækifæri komandi kynslóða? Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Berglind Friðriksdóttir,Böðvar Guðbjörn Jónsson,Guðmundur Oddgeirsson,Gunnsteinn R. Ómarsson,Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir,Hrönn Guðmundsdóttir,Sigfús Benóný Harðarson skrifar Skoðun Fjórða læknaferðin endurgreidd Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Réttlætingar og lygar Ísraels Yousef Tamimi skrifar Skoðun Versta kerfi í heimi? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Má ég taka þátt … í lífinu? Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Með réttlætið að leiðarljósi Bergdís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Katrín eða Halla Hrund? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Sterk, rökföst og réttsýn rödd skrifar Skoðun Helga Þórisdóttir - Minn forseti Valdimar Óskarsson skrifar Skoðun Styðjum Katrínu Jakobsdóttur Gerður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvaðan kemur þessi ótti við tilfinningar? Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Lyf og dáleiðsla Hannes Björnsson skrifar Sjá meira
Sjómannasamband Íslands og Farmanna- Og Fiskimannasamband Íslands skiluðu nýverið inn umsögnum um strandveiðifrumvarp Pírata. Bæði félögin skrifuðu á þann veg að staðreynd væri að auknar aflaheimildir til strandveiða þýddu minni veiðar fyrir atvinnusjómenn. Í frétt í Fréttablaðinu 24. apríl er vitnað í umsögn Sjómannasambandsins og hið sama haft eftir Valmundi Valmundssyni, formanni sambandsins. Ég vil benda á að nálgun beggja félaganna gengur út frá því að ætlun frumvarpsins sé að taka aflaheimildir úr kerfinu sem fyrir er og færa þær í strandveiðar. Það er rangt. Frumvarpið er skýrt hvað þetta varðar og er ætlunin að skapa þessar aflaheimildir hliðstætt við það kerfi sem er í dag. Því kemur engin skerðing til á þá sem fyrir eru í greininni. Nálgun Pírata gengur út á breytta aflareglu sem miðar að því að veiðar verði 22% af heildarstofni þorsks í stað 20%. Í frumvarpinu er það skýrt að þau 20% sem nú er aflað af skipum innan aflamarkskerfisins verði áfram þar og því er engin skerðing á þann sjávarútveg. Ég hefði haldið að félögin myndu styðja slík áform, þar sem fjöldinn allur af þeirra félagsmönnum stunda veiðarnar sem sína atvinnu. Það kemur mér verulega á óvart að hvorugt félagið hafi farið í efnislega umræðu við sína félagsmenn um frumvarpið og ekki kynnt sér það ítarlega áður en lagt er á stað í aurburð um innihaldið. Fjöldi sjómanna hefur haft samband við mig og hvatt mig áfram í þessari baráttu og því verð ég að spyrja hvort forkólfar SÍ og FFSÍ hafi átt einhvern orðastað við sjómenn upp á síðkastið.
Skoðun Ég Gísli Hvanndal Jakobsson ætla í framboð til Alþingis með Vinstri grænum Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar
Skoðun Starfsgetumat er kerfisbreytingin - ekki dass af báðu í mixtúru fyrir aumingja! María Pétursdóttir skrifar
Skoðun Grjótmulningsverksmiðja umfram blómleg tækifæri komandi kynslóða? Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Berglind Friðriksdóttir,Böðvar Guðbjörn Jónsson,Guðmundur Oddgeirsson,Gunnsteinn R. Ómarsson,Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir,Hrönn Guðmundsdóttir,Sigfús Benóný Harðarson skrifar