Innlent

Fimm ára börn verða innrituð

Sveinn Arnarsson skrifar
Akureyrarbær
Akureyrarbær
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að skoða til hlítar leiðir til að innrita fleiri börn á leikskóla og koma þannig til móts við barnafjölskyldur.

Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, óskaði eftir umræðum um leikskólamál vegna frétta í Fréttablaðinu þess efnis að foreldrar séu að hugsa um að flytja úr sveitarfélaginu til að tryggja börnum sínum leikskólavist en Akureyrarbær getur ekki tryggt börnum veru á leikskóla eða hjá dagmóður.

Skoða á leiðir til að innrita fimm ára börn inn í grunnskóla og opna þannig leiðir til að innrita fleiri börn í leikskóla. Verður þeirri vinnu flýtt og von að víðtæk sátt náist um þessa leið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×