Sýningin unnin eftir sögum ömmu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. apríl 2017 10:45 Það er nóg að gera hjá Ninnu í sveitinni eins og sjá má. Vísir/Anton Brink
Sýningin er án orða en unnin upp úr sögum sem amma mín, Signý Óskarsdóttir, sagði mér þegar ég var lítil,“ segir Agnes Wild, leikstjóri brúðusýningarinnar Á eigin fótum sem frumsýnd verður í Tjarnarbíói á morgun klukkan 15. „Amma var send úr borginni í sveit sem barn á millistríðsárunum eins og fjölmargir krakkar á þeim tíma. Var sex ára þegar hún fór fyrst og þá til þriggja mánaða dvalar hjá alókunnugu fólki vestur á Mýrum, það var hennar fyrsta ferð úr Reykjavík. Ninna heitir brúðan í sýningunni og í verkinu sjáum við hana þroskast og styrkjast, svo kemur pabbi hennar í lokin að sækja hana,“ segir Agnes sem kveðst hafa alist upp við sögur af lífinu í sveitinni og unnið upp úr þeim í tvö ár með hléum, ásamt félögum í leikhópnum Miðnætti. „Við lásum okkur til, ræddum við fleiri ömmur og annað eldra fólk. Erum ekki bara að fjalla um sveitina heldur líka þá reynslu barna að vera fjarri foreldrum sínum og þurfa að standa á eigin fótum. Verkið er ætlað leikskólaaldrinum en þetta er skemmtileg saga fyrir þau eldri líka.“Agnes Wild er upphafsmaður og leikstjóri sýningarinnar Á eigin fótum.Fréttablaðið/Anton BrinkAldagömul japönsk aðferð er notuð við sýninguna, að sögn Agnesar. „Þrír leikarar eru kringum brúðuna allan tímann og stjórna henni. Einn heldur um höfuðið og vinstri höndina, annar um rassinn og hægri höndina og sá þriðji stjórnar fótunum. Þannig lifnar brúðan við og fólk gleymir að horfa á leikarana því brúðan dregur að sér alla athyglina.“ Aðspurð kveðst Agnes hafa kynnst þessari tækni í leiklistarskóla í Bretlandi. „Við fengum brúðuleikara að utan til að þjálfa okkur fyrir þessa sýningu í febrúar í fyrra og höfum tekið tarnir síðan.“ Það eru leikhóparnir Miðnætti og Lost Watch Theatre Company sem standa að sýningunni. Agnes telst til beggja hópanna. Tónlist er frumsamin af Sigrúnu Harðardóttur fiðluleikara og Margréti Arnardóttur harmóníkuleikara og þær flytja hana sjálfar á hverri sýningu. Höfundarnir drifu sig vestur á Mýrar að skoða sögustaðinn, að sögn Agnesar. „Amma sigldi með pabba sínum upp í Borgarnes og þaðan hjólaði hann með hana í sveitina, bærinn var ekki í vegasambandi á þeim tíma. Hann er enn í byggð þó húsakynnin sem amma var í séu horfin.“ Agnes segir Snata, hundinn á bænum, koma við sögu í sýningunni, líka kýr, kindur, spóa og svani. „Dýrin eru búin til úr hversdagslegum hlutum. Kýrin er úr fötu og ferðatösku, hundurinn er skór, trefill og vettlingar og svanirnir eru úr sængurverum,“ lýsir hún. „Það á að hvetja börn til að nota hvað sem er í leiki sína.“
Mest lesið „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Lífið Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Fann fíkniefnin strax Lífið Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Gagnrýni Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Lífið Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Lífið Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú Lífið Fleiri sniðgengu en ekki Lífið Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Menning Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Lífið Fleiri fréttir „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Farnar á hestbak eins og hálfs og fjögurra ára Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Inga Lind selur íbúð við Valshlíð „Þetta er náttúrulega sorgarsaga okkar Íslendinga“ Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Herra Hnetusmjör hitti Akon: „Þeir vita sem vita“ Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Greindu frá kyninu á ströndinni Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Fögnuðu heimkomu Nemo Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Nýir Íslendingar heimsóttu Bessastaði Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Sjá meira