Bílar

Volvo, Fiat, Nissan og PSA skrópa á bílasýninguna í Frankfurt

Finnur Thorlacius skrifar
Frá bílasýningunni í Frankfurt.
Frá bílasýningunni í Frankfurt.
Þó svo að PSA Peugeot Citroën samstæðan hafi stækkað um Opel/Vauxhall merkin á dögunum ætlar fyrirtækið ekki að taka þátt í bílasýningunni í Frankfurt í haust. Það sama á reyndar við um þekkt bílamerki eins og Volvo, Nissan og Fiat Chrysler bílasamstæðuna. Þar innanborðs eru meðal annars bílamerkin Jeep, Alfa Romeo, RAM, Dodge og að sjálfsögðu Fiat og Chrysler.

Mörg bílafyrirtæki eru að breyta áherslum sínum frá bílasýningum til markaðssetningar á vefnum með áherslu á samfélagsmiðla. Þrátt fyrir að þessi fyrirtæki muni ekki taka þátt verða 50 bílamerki á sýningunni í Frankfurt frá Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum.

Einhver ný bílamerki verða á staðnum og það aðallega frá Kína. Þó svo þessi bílamerki taki ekki þátt nú útilokar það ekkert í framtíðinni hvað varðar þátttöku þeirra í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×